Keflavík 3-4 Breiðablik
1-0 Adam Árni Róbertsson(7′)
1-1 Thomas Mikkelsen(11′)
2-1 Markaskorara vantar(23′)
2-2 Thomas Mikkelsen(43′)
2-3 Aron Bjarnason(52′)
2-4 Þórir Guðjónsson(67′)
3-4 Ísak Óli Ólafsson(80′)
Það fór fram skemmtilegur leikur í Lengjubikar karla í kvöld er Keflavík og Breiðablik áttust við.
Leikið var í Reykjaneshöllinni og var boðið upp á sjö marka skemmtun þar sem Blikar höfðu betur.
Staðan var 2-1 fyrir Keflavík á 23. mínútu en þá fylgdu þrjú mörk frá Blikum sem komust í 4-2.
Ísak Óli Ólafsson skoraði svo mark fyrir Keflvíkinga undir lokin en lokastaðan 4-3 fyrir þeim grænklæddu.