Walter Mazzarri hefur verið ráðinn stjóri Torino en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Hann tekur við liðinu af Sinisa Mihajlovic sem var rekinn í dag.
Mazzarri stýrði síðast liði Watford í ensku úrvalsdeildinni en var rekinn eftir tímabilið í fyrra.
Hann hefur stýrt liðum á borð við Inter Milan, Napoli og Sampdoria á ferlinum.
Torino situr í tíunda sæti ítölsku Serie A með 25 stig eftir 19 leiki, 5 stigum frá Evrópusæti.