Rúnar Már Sigurjónsson er að öllum líkindum á förum frá Grasshoppers í Sviss en það er fótbolti.net sem greinir frá þessu.
Þessi 27 ára gamli miðjumaður kom tl félagsins árið 2016 frá sænska liðinu GIF Sundsvall.
Hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu að undanförnu en hann hefur skorað 3 mörk í 12 leikjum fyrir félagið á þessari leiktíð.
Rúnar var orðaður við sænski meistarana í Malmö á dögunum og þá hafa fleiri lið sýnt því áhuga að fá hann í sínar raðir.