Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, býst við þvi að Wilfried Zaha leiki með félaginu á næstu leiktíð.
Zaha er orðaður við Arsenal þessa dagana og er talað um að hann sé búinn að segja Palace að hann vilji fara.
Hodgson hefur hins vegar ekki heyrt af því og veit ekki hvað gerist næst í máli leikmannsins.
,,Hann hefur ekki talað við mig. Ég veit ekki hvort hann hafi rætt við félagið,“ sagði Hodgson.
,,Ég veit ekki betur en að hann sé að koma aftur. Hann er okkar leikmaður og ég hef ekki heyrt að félagið vilji selja hann.“
,,Ég býst bara við að fá hann aftur. Ég er spenntur fyrir því að vinna með honum og sjá þá hluti sem hann getur gert fyrir okkur.“