Real Madrid á Spáni er sagt ætla að reyna við Mohamed Salah, leikmann Liverpool í sumar.
Real mun styrkja leikmannahóp sinn verulega í sumar en gengi liðsins hefur verið hræðilegt í vetur.
Liðið er úr leik í Meistaradeildinni eftir óvænt tap gegn Ajax í 16-liða úrslitum. Liðið vann keppnina á síðustu leiktíð.
Samkvæmt heimildum Don Balon þá ætlar Real að reyna við Salah ef liðinu mistekst að fá Eden Hazard frá Chelsea.
Hazard dreymir um að spila fyrir Real en hann er samningsbundinn Chelsea þar til á næsta ári.
Talað er um að Real sé tilbúið að borga 150 milljónir punda fyrir Salah sem hefur raðað inn mörkum á Anfield.