KR vann sterkan sigur í Pepsi-Max deild kvenna í kvöld er liðið spilaði við ÍBV í Vestmannaeyjum.
ÍBV var án Cloe Lacasse í leik kvöldsins og vann KR 4-2 sigur þar sem bæði Katrín Ómarsdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir gerðu tvennu.
Fylkir vann síðar í kvöld afar góðan heimasigur á Stjörnunni – Ída Marín Hermannsdóttir gerði tvö í sigrinum.
Valur var þá í engum vandræðum með lið HK/Víkings og vann sannfærandi 7-0 heimasigur og fer á toppinn.
ÍBV 2-4 KR
0-1 Katrín Ómarsdóttir(víti)
1-1 Brenna Lovera(víti)
1-2 Guðmunda Brynja Óladóttir
1-3 Katrín Ómarsdóttir
1-4 Guðmunda Brynja Óladóttir
2-4 Clara Sigurðardóttir
Fylkir 3-1 Stjarnan
1-0 Ída Marín Hermannsdóttir
2-0 Ída Marín Hermannsdóttir
3-0 Bryndís Arna Níelsdóttir
3-1 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir
Valur 7-0 HK/Víkingur
1-0 Elín Metta Jensen
2-0 Fanndís Friðriksdóttir
3-0 Elín Metta Jensen
4-0 Margrét Lára Viðarsdóttir
5-0 Fanndís Friðriksdóttir
6-0 Margrét Lára Viðarsdóttir
7-0 Hlín Eiríksdóttir