Breiðablik fer vel af stað í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, stelpurnar unnu góðan sigur á ASA Tel Aviv.
Alexandra Jóhannsdóttir kom Blikum yfir snemma leik og Agla María Albertsdóttir bætti við.
Hildur Þóra Hákonardóttir kom Blikum í 3-0 eftir klukkutíma leik áður en Agla María skoraði sitt annað mark úr vítaspyrnu.
Tel Aviv lagaði stöðuna skömmu síðar en öruggur 1-4 sigur Blika í fyrsta leik, staðreynd. Liðið mætir Dragon á laugardag.