Breiðablik 4-0 KA
1-0 Thomas Mikkelsen(24′)
2-0 Alexander Helgi Sigurðarson(37′)
3-0 Thomas Mikkelsen(79′)
4-0 Brynjólfur Darri Willumsson(89′)
Breiðablik var í stuði í Pepsi Max-deild karla í kvöld er liðið mætti KA í 15. umferð sumarsins.
Blikar hafa verið í lægð undanfarið en svöruðu heldur betur fyrir sig í Evrópubaráttunni í kvöld.
Thomas Mikkelsen skoraði tvennu fyrir Blika sem höfðu betur með fjórum mörkum gegn engu.
Blikar eru í öðru sæti deildarinnar með 26 stig þó 10 stigum á eftir toppliði KR.