Liverpool vann sterkan sigur í ensku úrvalsdeildinni í gær er liðið mætti Arsenal á Anfield.
Það var boðið upp á skemmtilegan leik í Liverpool en heimamenn höfðu að lokum betur, 3-1.
Liverpool hefur nú sett félagsmet í ensku úrvalsdeildinni en liðið var að vinna sinn 12. deildarleik í röð.
Það er það mesta sem liðið hefur unnið í röð síðan úrvalsdeildin var stofnuð.
Liverpool endaði síðasta tímabil gríðarlega vel og byrjar þessa leiktíð á þremur sigurleikjum.