Renato Sanches er loksins farinn frá Bayern Munchen en hann reyndi að komast burt í allt sumar.
Sanches gaf það út fyrr í vikunni að Bayern væri að stöðva hann í því að semja við annað félag.
Nú hefur Portúgalinn fengið ósk sína uppfyllta og gerði samning við Lille í frönsku úrvalsdeildinni.
Sanches kom til Bayern frá Benfica árið 2016 en stóðst aldrei væntingar á Allianz Arena.
Hann skrifar undir langtímasamning við Lille en kaupverðið er ekki gefið upp að svo stöddu.