Shkodran Mustafi er líklega á förum frá Arsenal í sumar að sögn föður hans, Kujtim Mustafi.
Mustafi hefur ekki staðist væntingar hjá Arsenal en hann kom til félagsins árið 2016 frá Valencia.
Þjóðverjinn getur enn samið við annað félag í Evrópu en glugginn þar er opinn til 2. september.
,,Shkodran hefur upplifað frábæra tíma með Arsenal. Við erum enn samningsbundnir næstu tvö árin og getum ímyndað okkur að vera áfram í London,“ sagði Kujtim.
,,Það er hins vegar örugglega best fyrir báða aðila að breyta til. Við þurfum hins vegar að fá upphæð sem hentar markaðnum.“