Það er stórleikur í ensku úrvalsdeildinni síðdegis á morgun þegar Arsenal heimsækir Liverpool.
Bæði lið hafa unnið fyrstu tvo leikina sína í deildinni og má búast við fjöri.
Arsenal hefur ekki riðið feitum hesti á útivelli gegn stórliðum síðustu ár, hvað gerist á morgun?
Ekki er búist við miklum breytingum á liðunum en hér að neðan eru líkleg byrjunarlið.