Markvörðurinn Fraser Forster hefur skrifað undir samning við skoska stórliðið Celtic.
Þetta var staðfest í dag en Forster var búinn að missa sæti sitt sem aðalmarkvörður Southampton.
Forster var lengi aðalmarkvörður Celtic áður en hann hélt til Englands og samdi við Southampton.
Forster hefur gert eins árs langan lánssamning við skosku meistarana.