David Beckham eigandi Inter Miami vill sækja Luis Suarez framherja Barcelona til félagsins.
Inter Miami hefur leik í MLS deildinni á næsta ári, Beckham er sagður vilja fá framherjann frá Úrúgvæ.
Suarez yrði stjörnuleikmaður liðsins en hann gæti hugsað sér að fara frá Barcelona.
Í Miami er ljúft að vera til og væri styttra fyrir framherjann að skreppa heim til Úrúgvæ.
Miami liðið hefur samið við tvo óþekkta leikmenn en félagið vinnur hörðum höndum í leikmannamálum sínum þessa dagana.