Craig Bellamy, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur fengið væna pillu frá fyrrum knattspyrnustjóranum Aad de Mos.
Bellamy er í dag þjálfari hjá Anderlecht í Belgíu en hann þjálfar U21 lið félagsins.
De Mos sá Bellamy þjálfa Anderlecht á móti í Hollandi og var langt frá því að vera hrifinn af því sem hann sá.
,,Ég sá Bellamy vinna á Ottencup í Eindhoven. Hann veit ekkert hvað hann er að gera,“ sagði De Mos.
,,Hann veit ekkert. Ég hef aldrei séð svona lélegan þjálfara hjá Anderlecht á síðustu fimm árum.“
,,Það var ekkert skipulag þarna. Eftir tíu mínútur þá áttaði ég mig á því að hann veit ekki nokkurn skapaðan hlut.“