Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Vals hefur líklega spilað sinn síðasta leik í sumar. Fótbolti.net segir frá.
Ástæðan er tognun í nára sem Sigurður varð fyrir í 3-3 jafntefli gegn Breiðablik á mánudag.
Sigurður hafði spilað vel í leiknum og lagt upp fyrsta mark leiksins áður en hann fór af velli.
Möguleiki er á að Sigurður geti spilað síðustu tvo leiki sumarsins en það stendur tæpt.
Valsmenn hafa verið að missa menn út í meiðsli en einnig er Ólafur Karl Finsen frá út tímabilið.