Daniel Sturridge, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur skrifað undir samning við lið Trabzonspor.
Sturridge hefur verið án félags síðustu vikur en hann varð samningslaus hjá Liverpool í júlí.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur gert þriggja ára samning við Trabzonspor sem leikur í Tyrklandi.
Sturridge skoraði 160 leiki fyrir Liverpool og skoraði 67 mörk – hann kom til félagsins árið 2013.
Meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá Sturridge sem er uppalinn hjá Manchester City.