Mo Salah, leikmaður Liverpool, hlær að ummælunum sem Gary Neville lét falla á dögunum.
Neville ræddi við Sky Sports og gaf það út að Salah væri líklega á förum frá Liverpool á næstu 12 mánuðunum.
Það væri áfall fyrir Liverpool en Salah er einn allra mikilvægasti leikmaður Evrópumeistarana.
Salah hefur nú svarað fyrir sig en hann segist vera sáttur hjá félaginu og er ekki að hugsa um að fara.
,,Ég er ánægður hjá Liverpool. Ég er ánægður í borginni og ég elska stuðningsmennina og þeir mig. Ég er ánægður hjá félaginu,“ sagði Salah.