Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur gefið í skyn að liðið hafi reynt að fá Philippe Coutinho í sumar.
Coutinho var seldur frá Liverpool til Barcelona í fyrra en var svo lánaður til Bayern Munchen í gær.
Hann var orðaður við endurkomu til Liverpool og var Klopp spurður út í það í gær.
,,Þetta hljómar kannski furðulega en við höfðum ekki efni á þessu,“ sagði Klopp við Goal.
,,Við vorum nú þegar búnir að eyða upphæðinni sem við fengum fyrir hann.“