Manchester United reynir að losa sig við nokkra leikmenn áður en félagaskiptaglugginn í Evrópu lokar.
Alexis Sanchez og Marcos Rojo gætu farið frá félaginu en Rojo er á óskalista hjá nokkrum félögum.
United vill helst selja hann en lið á Ítalíu og Spáni vilja fá hann að láni.
United vill selja Rojo og er tilbúið að greiða honum væna summu, svo hann fari. Rojo þénar 130 þúsund pund á viku og á tvö ár eftir af samningi.
Slík laun fær hann ekki hjá öðrum félögum og því þarf United að borga með honum. Fenerbache hefur áhuga á að kaupa hann.