KR 1-0 Víkingur R.
1-0 Kristján Flóki Finnbogason(41′)
KR er nú með tíu stiga forystu í Pepsi Max-deild karla eftir leik við Víking Reykjavík í kvöld.
KR-ingar höfðu tapað tveimur leikjum í röð fyrir viðureign kvöldsins gegn HK í deild og FH í bikar.
Eitt mark var skorað á Meistaravöllum en það gerði Kristján Flóki Finnbogason fyrir þá svarthvítu.
KR er með 39 stig á toppnum en Víkingar eru aðeins með 19 stig og eru eini stigi frá fallsæti.