Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur greint frá því hvað hann sagði við markvörðinn Adrian eftir leik við Southampton í gær.
Adrian gerði sig sekan um slæmt mistök í 2-1 sigri en mark Southampton skrifast algjörlega á Spánverjann.
Klopp segir að það sé eðlilegt fyrir markverði Liverpool að gera mistök eins og Alisson gerði á síðustu leiktíð gegn Leicester City.
,,Ég sagði við hann að hann væri loksins mættur til leiks! Ali gerði það sama, þetta er bara eitthvað sem gerist fyrir markmenn hjá Liverpool,“ sagði Klopp.
,,Hann gerði mistök og það er ekkert vandamál á meðan við vinnum leikin