Ashley Cole, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur staðfest það að hann sé hættur eftir farsælan feril.
Cole er 38 ára gamall í dag en hann lék síðast með Derby County í næst efstu deild á Englandi.
Það var búist við því að hann væri hættur eftir síðasta tímabil en Cole hafði aldrei staðfest þær fregnir.
Fyrrum enski landsliðsmaðurinn hefur nú gefið það út að skórnir séu endanlega komnir í hilluna.
Cole vann ensku úrvalsdeildina þrisvar á sínum tíma og sigraði einnig Meistaradeildina með Chelsea.