Granit Xhaka, leikmaður Arsenal, var nálægt því að semja við lið Stoke fyrir fimm árum síðan.
Þetta segir Max Eberl, yfirmaður knattspyrnumála Borussia Monchengladbach, en Xhaka lék þar frá 2012 til 2016.
Arsenal festi kaup á leikmanninum árið 2016 en tveimur árum fyrir það þá ætlaði Stoke að fá hann til sín á láni.
,,Ferill Granit hjá Gladbach á fyrstu 18 mánuðunum var ekki svo góður,“ sagði Eberl.
,,Hann var næstum því farinn á láni til Stoke en ég sagði við hann: ‘ef þú ferð til Stoke þá endarðu aldrei hjá stórliði en þú gætir annars afrekað það.’