Toni Kroos, leikmaður Real Madrid, skoraði sturlað mark í gær er liðið mætti Celta Vigo.
Real vann 3-1 útisigur á Celta í spænsku úrvalsdeildinni sem er nú farin af stað eftir gott frí.
Luka Modric var rekinn af velli hjá Real í seinni hálfleik en stuttu seinna þá skoraði Kroos annað mark liðsins.
Þjóðverjinn ákvað að láta vaða langt fyrir utan teig og smellhitti boltann sem söng í netinu.
Markið má sjá hér.
Golazo from Toni Kroos! ???pic.twitter.com/AzcqhQuMKT
— SoccerMatrix ⚽ (@Soccer_Matrix) 17 August 2019