Rennes 2-1 PSG
0-1 Edinson Cavani
1-1 M’Baye Niang
2-1 Romain del Castillo
Paris Saint-Germain tapaði óvænt leik í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Rennes.
Um var að ræða annan deildarleik PSG í sumar en liðið vann Nimes í fyrstu umferð.
PSG komst yfir með marki frá Edinson Cavani en þeir M’Baye Niang og Romain del Castillo tryggðu Rennes 2-1 sigur.