FH 2-1 Fylkir
0-1 Ólafur Ingi Skúlason(50′)
1-1 Brandur Olsen(62′)
2-1 Brandur Olsen(90′)
FH styrkti stöðu sína verulega í þriðja sæti Pepsi Max-deildar karla í kvöld er liðið mætti Fylki.
Fylkir gat lyft sér upp í sjötta sæti deildarinnar með sigri á sama tíma og var því mikið undir í Kaplakrika.
Ólafur Ingi Skúlason kom Fylki yfir snemma í seinni hálfleik áður en Brandur Olsen jafnaði svo metin fyrir FH.
Brandur var svo aftur á ferðinni undir lok leiksins og tryggði FH sigur með marki á lokamínútu leiksins.