Celta Vigo 1-3 Real Madrid
0-1 Karim Benzema
0-2 Toni Kroos
0-3 Lucas Vazquez
1-3 Iker Losada
Real Madrid byrjar tímabilið á Spáni vel en liðið mætti Celta Vigo í fyrsta deildarleiknum í kvöld.
Real komst yfir snemma leiks en Karim Benzema skoraði strax eftir 12 mínútur og staðan 1-0 í hálfleik.
Luka Modric fékk beint rautt spjald á 56. mínútu en fimm mínútum síðar bætti Toni Kroos við öðru marki Real.
Lucas Vazquez skoraði svo þriðja mark Real á 80. mínútu áður en Iker Losada lagaði stöðuna fyrir Celta en 3-1 sigur Real staðreynd.