Peter Schmeichel, goðsögn Manchester United, segir að David de Gea sé búinn að’ skrifa undir nýjan samning við félagið.
De Gea hefur lengi verið í viðræðum við United en samningur hans við félagið rennur út á næsta ári.
Félagið hefur ekki staðfest undirskrift De Gea sem er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins.
Schmeichel ræddi þó við the Mirror í dag og segir þar að De Gea sé búinn að krota undir.
,,Við erum búnir að tryggja hans áframhaldandi þjónustu, hann verður hér áfram og við byggjum ofan á það,“ sagði Schmeichel.