Eins furðulega og það hljómar þá hefur Adel Taarabt skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Benfica.
Taarabt kom til Benfica fyrir fjórum árum síðan en hefur aðeins leikið ÁTTA leiki fyrir félagið.
A Bola í Portúgal fullyrðir það að Taarabt hafi samþykkt að taka á sig 30 prósent launalækkun.
Félagið staðfesti undirskriftina í gær en það kemur mörgum á óvart þar sem hann hefur ekkert spilað fyrir félagið.
Taarabt var fljótt orðinn hluti af varaliði Benfica eftir skipti til Portúgals og gerði einnig 18 mánaða lánssamning við Genoa árið 2017.