Gareth Bale er á förum frá Real Madrid í sumar en hann er ekki inni í myndinni hjá Zinedine Zidane.
Zidane vill losna við Bale og það strax en hann staðfesti það eftir leik gegn Bayern Munchen um helgina.
Bale er þrítugur vængmaður en hann hefur margoft þurft að glíma við erfið meiðsli á ferlinum.
Tölfræði Bale með Real er þó mjög góð en hann byrjaði feril sinn gríðarlega vel eftir komu frá Tottenham.
Nú er rætt um hvort þessi meðferð sem Bale fær sé sanngjörn og er tölfræði hans borin saman við einmitt tölfræði Zidane.
Munurinn er mikill eins og má sjá hér fyrir neðan.