Það hefur gengið ansi erfiðlega hjá liði KV undanfarnar vikur en liðið var lengi á toppnum í 3.deild karla.
KV mætti Vængjum Júpíters í kvöld og tapaði heima, 3-0. Þetta var fjórði leikur KV í röð þar sem liðinu tekst ekki að sigra.
KV er nú í fjórða sæti deildarinnar með 26 stig og eru Vængirnir komnir í annað sætið með 28 stig.
Augnablik vann botnslaginn gegn KH á sama tíma en bæði lið voru með sjö stig við botninn.
Augnablik hafði betur með tveimur mörkum gegn engu og lyfti sér í öruggt sæti í bili.
Dalvík/Reynir og KFG áttust þá við í 2.deildinnni og þar hafði Dalvík/Reynir betur með tveimuir mörkum gegn einu.
KV 0-3 Vængir Júpíters
Augnablik 2-0 KV
1-0 Bjarni Þór Hafstein
2-0 Stefán Ingi Gunnarsson
Dalvík/Reynir 2-1 KFG