Tottenham hefur ekki lagt fram tilboð í vængmanninn Gareth Bale eins og margir miðlar hafa greint frá.
Þetta staðfesti umboðsmaður hans Jonathan Barnett í morgun en hann ræddi við útvarpsstöðina TalkSport.
Bale er sterklega orðaður við brottför frá Real Madrid og var greint frá því að Tottenham væri búið að leggja fram 60 milljóna punda tilboð í leikmanninn.
,,Ég ætla ekki að tjá mig um kjaftæði,“ sagði Barnett í samtali við TalkSport.
Bale var áður á mála hjá Tottenham og var besti leikmaður liðsins áður en hann hélt til Spánar.