Ravel Morrison hefur skrifað undir samning við Sheffield United en þetta var staðfest í dag.
Morrison er fyrrum undrabarn en hann lék með Manchester United á sínum tíma sem og West Ham.
Hann var talinn einn allra efnilegasti leikmaður United en þótti ekki sýna nægan metnað utan vallar.
Morrison var kynntur hjá Sheffield í dag og fær því líflínu í ensku úrvalsdeildinni á ný.
Leikmaðurinn lék síðast með liði Östersunds í Svíþjóð og tekur því risaskref upp á við.
Með fylgir myndband af Morrison skora gullfallegt mark með West Ham á sínum tíma.
Ravel Morrison vs Tottenham Hotspur (2013). pic.twitter.com/Pc6PLmkJD2
— PLClassics (@PLClassics) 16 July 2019