Nabil Fekir, leikmaður Lyon í Frakklandi, er að semja við óvænt félag en hann vill komast burt frá félagi sínu.
Fekir er fyrirliði Lyon en hann var hársbreidd frá því að ganga í raðir Liverpool síðasta sumar.
Þau félagaskipti féllu þó niður á síðustu stundu áður en Fekir fór með franska landsliðinu á HM.
Nú greina franskir miðlar frá því að Fekir sé að semja við Real Betis á Spáni og gerir fimm ára samning.
Það kemur mikið á óvart en Betis mun borga 30 milljónir evra fyrir þennan öfluga miðjumann.