Mauro Icardi, framherji Inter Milan, mun ekki taka þátt í æfingaferð félagsins í Asíu.
Þetta var staðfest í gær en leikmenn Inter hafa undanfarið æft í Sviss þar sem Icardi var með í för.
Hann hefur hins vegar komist að samkomulagi við Inter um að snúa aftur heim og er á leið til Milano.
Icardi hefur sterklega verið orðaður við brottför í sumar og er ansi líklegt að hann sé ekki í plönum Antonio Conte.
Icardi er 26 ára gamall og er hann sagður vera á óskalista Ítalíumeistara Juventus.