Antoine Griezmann, leikmaður Barcelona, mun ekki klæðast treyju númer sjö hjá félaginu.
Það var talað um að Griezmann myndi taka sjöuna á Nou Camp og þar með fá númer Philippe Coutinho.
Það reyndist hins vegar ekki rétt og mun Frakkinn klæðast treyju númer 17 hjá spænsku risunum.
Griezmann kostaði Barcelona 120 milljónir evra á dögunum og er næst dýrastur í sögu félagsins á eftir Coutinho.
Útlit er fyrir að Coutinho muni fá að sanna sig á næstu leiktíð en hann stóðst ekki væntingar á síðasta tímabili.