KR er komið með gott forskot í Pepsi Max-deild karla eftir leik við Breiðablik í toppslag í kvöld.
Tvö mörk voru skoruð á Meistaravöllum í kvöld og voru það heimamenn sem gerðu bæði.
Kristinn Jónsson skoraði það fyrra með fallegu skoti innan teigs áður en Óskar Örn Hauksson bætti við öðru.
Það var lítið fjör í hinum tveimur leikjum kvöldsins þar sem engin mörk voru skoruð í Grindavík og á Víkingsvelli.
Grindavík og FH gerðu markalaust jafntefli í Grindavík og Víkingar og ÍA gerðu einnig jafntefli þar sem engin mörk voru skoruð.
KR 2-0 Breiðablik
1-0 Kristinn Jónsson(8′)
2-0 Óskar Örn Hauksson(61′)
Grindavík 0-0 FH
Víkingur R. 0-0 ÍA