Blaðamaðurinn Helgi Seljan Jóhannsson fylgdist með stórleik KR og Breiðabliks í Pepsi Max-deild karla í kvöld.
Um var að ræða gríðarlega mikilvægan leik í baráttunni um toppsætið en KR hafði betur, 2-0.
Mætingin á Meistaravelli var stórkostleg í kvöld en yfir 3000 manns létu sjá sig í stúkunni.
Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Blika, þurfti að hlusta á baul úr stúkunni frá KR-ingum en hann er uppalinn Valsari.
Helgi hraunaði yfir þá hegðun KR-inga á Twitter-síðu sinni í kvöld og sparaði ekki stóru orðin.
,,Djöfull er það aumt að hlusta á þetta aðkeypta hyski þarna í Vesturbænum, reyna að snobba sig upp um stærð á primaloft-úlpum með að púa á Arnar Svein,“ skrifaði Helgi.
Arnar kom til Breiðabliks frá Val fyrir þetta tímabil og hefur staðið sig vel síðan hann samdi.
Það var mikill hiti í Vesturbænum í kvöld enda var mikið undir og var ekkert gefið eftir bæði innan sem utan vallar.
Djöfull er það aumt að hlusta á þetta aðkeypta hyski þarna í Vesturbænum, reyna að snobba sig upp um stærð á primaloft-úlpum með að púa á Arnar Svein. #stólveldið
— Helgi Seljan Jóhannsson (@helgiseljan) 1 July 2019