Stefán Gíslason hefur sagt upp störfum sem þjálfari Leiknis og tekur við liði Lommen í Belgíu, liðið leikur í næst efstu deild.
Jonathan Henricx yfirgaf Breiðablik um síðustu helgi og gekk í raðir Lommen.
Stefán tók við þjálfun Leiknis í vetur en lætur nú af störfum á miðju tímabili.
Hann þjálfaði áður Hauka og kom að þjálfun yngri flokka hjá Breiðablki. Stefán átti farsælan feril í atvinnumennsku og með íslenska landsliðinu.
Stefán lék með OH Leuven í Belgíu frá 2012 til ársins 2014 og hefur því reyndslu af því að búa í Belgíu.