Fram 2-1 Þróttur R.
0-1 Daði Bergsson
1-1 Helgi Guðjónsson
2-1 Már Ægisson
Fram er komið aftur á toppinn í Inkasso-deild karla eftir leik við Þrótt Reykjavík í 9. umferð í kvöld.
Það var boðið upp á skemmtun á Framvelli en gestirnir í Þrótti tóku forystuna á fjórðu mínútu.
Á 60. mínútu jafnaði Helgi Guðjónsson metin fyrir Fram áður en Federico Saraiva fékk að líta beint rautt spjald.
Tíu Framarar unnu þó leikinn að lokum en Már Ægisson gerði sigurmark liðsins á 90. mínútu og lokastaðan, 2-1.