Tottenham er að kaupa miðjumanninn Tanguy Ndombele frá Lyon í Frakklandi en þetta kemur fram í kvöld.
Tottenham borgar 62 milljónir evra fyrir Ndombele sem er 22 ára gamall franskur landsliðsmaður.
Virti blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio fullyrðir þessar fregnir og mun Ndombele skrifa undir á næstu dögum.
Forseti Lyon gaf það út fyrr í dag að Ndombele mætti fara frá félaginu og að það væri hans ósk.
Tottenham ætlar því að kaupa í þessum glugga annað en síðasta sumar sem eru góðar fréttir fyrir stuðningsmenn liðsins.