Alexis Sanchez gæti þurft að komast burt í sumar samkvæmt Ivan Zamarano, gopsögn Síle.
Sanchez er 30 ára gamall sóknarmaður en hann hefur ekkert getað hjá Manchester United eftir að hafa samið í fyrra.
Það er ekki víst að Sanchez muni eiga fast sæti í liðinu á næstu leiktíð og gæti þurft að leita annað að mati Zamarano.
,,Það sem er best fyrir Sanchez er fyrir hann að spila – hvort sem það sé hjá United eða í öðru liði,“ sagði Zamarano.
,,Það mikilvægasta er að hann fái að spila reglulega. Ég tala bara af reynslu. Stundum þegar þú spilar erlendis þá spilarðu ekki, það er erfitt að komast á sama stað og þú varst á.“
,,Ég hef séð þetta gerast áður. Alexis hefur ekki spilað í Manchester í langan tíma en um leið og hann klæðir sig í treyju Síle er hann öðruvísi.“