Kevin Gallacher, fyrrum stjarna Skotlands, hvetur Arsenal til að reyna enn frekar við bakvörðinn Kieran Tierney.
Tierney er sterklega orðaður við Arsenal þessa stundina en hann er samningsbundinn Celtic.
Gallacher telur að Tierney henti leikstíl Arsenal vel og að félagið eigi ekki að spara þegar kemur að skoska landsliðsmanninum.
,,Kieran getur svo sannarlega höndlað skipti til Arsenal. Hann er frábær leikmaður,“ sagði Gallacher.
,,Lið eins og Arsenal vill spila fótbolta. Ég tel að það henti Kieran vel – hann er sóknarsinnaður bakvörður.“
,,Eins og staðan er þá eru þeir að nota Nacho Monreal í bakverði. Kieran er miklu betri en hann.“