Paul Pogba vill fara frá Manchester United, þetta hefur hann staðfest. Hann telur sig þurfa nýja áskorun.
Pogba hefur verið í þrjú ár hjá United, hann er umdeildur á meðal stuðningsmanna. Vegna þess hvernig hann hagar sér utan vallar.
Pogba vill fara til Juventus í sumar, United keypti hann frá Juventus fyrir þremur árum, á 89 milljónir punda.
Real Madrid hefur einnig haft áhuga á Pogba en United vill 150 milljónir punda fyrir Pogba.
AS á Spáni segir að Pogba vilji spila með Cristiano Ronaldo, það sé ástæða þess að hann vill frekar fara til Juventus.
Framtíð Pogba ætti að skýrast á næstu vikum en ekki eru allir sammála hjá United, hvað skal gera.