Markvörðurinn Gianluigi Buffon er að snúa aftur til Juventus og mun skrifa undir eins árs samning við félagið.
Frá þessu greinir Frabrizio Romano, blaðamaður Sky Sports en hann þykir vera öruggur heimildarmaður.
Buffon lék lengi með Juvetus og var aðalmarkvörður liðsins áður en hann samdi við Paris Saint-Germain í fyrra.
Ítalinn ákvað að vera ekki lengur í Frakklandi og er nú við það að gera samning við Juventus á ný.
Hann verður hins vegar ekki aðalmarkvörður liðsins og verður varamarkvörður fyrir Wojciech Szczesny.