Svíþjóð hefur tryggt sæti sitt í 8-liða úrslitum HM kvenna en liðið spilaði við Kanada á Parc des Princes í dag.
Það var ekki boðið upp á stórskemmtilegan leik í kvöld en Svíar fögnuðu að lokum 1-0 sigri.
Stina Blackstenius gerði eina mark leiksins fyrir Svíþjóð en síðar í leiknum klikkuðu þær kanadísku á vítaspyrnu sem kostaði sitt.
Fyrr í dag tryggði Bandaríkin sér einnig sæti í næstu umferð með sigri á Spánverjum.
Bandaríkin vann 2-1 sigur en bæði mörk liðsins gerði Megan Rapinoe úr vítaspyrnum.