Andy van der Meyde, fyrrum leikmaður Hollands, segir að tími Romelu Lukaku á Englandi sé liðinn.
Lukaku er sterklega orðaður við brottför en Inter Milan á Ítalíu hefur mikinn áhuga á sóknarmanninum.
Van der Meyde telur að Lukaku hafi nú þegar sannað sig á Englandi og að hann eigi að reyna fyrir sér annars staðar.
,,Ég skal segja ykkur mína skoðun en ég segi ykkur ekki hvað hann sagði mér fyrir framan myndavélina,“ sagði Van der Meyde.
,,Þið verðið að horfa á þáttinn minn sem verður sýndur eftir nokkrar vikur. Ég held að tími hans á Englandi sé búinn og hann getur reynt fyrir sér í annarri deild eins og Serie A.“