Það er möguleiki á því að miðjumaðurinn Jorginho muni yfirgefa Chelsea eftir aðeins eitt ár.
Þetta segir umboðsmaður hans Joao Santos en Jorginho er sterklega orðaður við Juventus þessa dagana.
Ástæðan er sú að Maurizio Sarri er tekinn við Juventus og fékk hann Jorginho til bæði Napoli og svo síðar Chelsea.
,,Jorginho er samningsbundinn næstu fjögur árin. Við munum bíða og sjá næstu daga hvort það sé eitthvað til í þessum sögusögnum,“ sagði Santos.
,,Hann er í góðu andrúmslofti þessa stundina en við getum ekki sagt til um hvort hann vilji fara annað. Allt getur gerst í glugganum. Við bíðum og sjáum.“