fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
433

Messi eftir vandræði Argentínu: ,,Klikkun ef við förum ekki áfram“

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 20. júní 2019 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi, leikmaður Argentínu, skoraði eina mark liðsins í nótt í leik gegn Paragvæ.

Liðin áttust við í riðlakeppni Copa America en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Argentína er með eitt stig eftir tvo leiki.

Það er ljóst að Argentína þarf á sigri að halda í lokaleik riðlakeppninar gegn Katar.

,,Ég sé að liðið er sannfært um það að við munum vinna næsta leik,“ sagði Messi við blaðamenn.

,,Það er í raun frekar pirrandi að ná ekki í sigur til að komast í næstu umferð. Við vissum að þetta yrði erfitt.“

,,Við erum ennþá að reyna við það besta, reyna að sýna bestu frammistöðuna og halda áfram að þroskast.“

,,Það væri klikkun ef við komumst ekki úr riðlinum, þegar nánast þrjú lið komast upp. Ég efast ekki um að við náum því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi
433Sport
Í gær

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“
433Sport
Í gær

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“